Kvíslarskóli
  • Virðing - 
  • Þrautseigja - 
  • Ábyrgð

Foreldrar

Mikilvægt er að foreldrar og starfsfólk skólans vinni saman að því að skapa farsæla umgjörð um það starf sem fram fer í skólanum. Hlýja, gagnkvæmt traust og gagnkvæm og virk upplýsingagjöf þarf að vera til staðar í samskiptum foreldra og skóla til að tryggja sem best hagsmuni barnanna. Foreldrar þekkja börnin sín best og er þekking þeirra á þroska og líðan barnanna lögð til grundvallar í öllu starfi með börnunum og foreldrum. Mestu máli skiptir, í námi og starfi barnanna, er að þeim líði vel í skólanum og að þau hafi tækifæri til að fást við viðfangsefni sem eflir þau og veitir þeim gleði.

Markmiðið með foreldrasamstarfi er að:

  •  veita foreldrum upplýsingar um skólastarfið.
  •  veita foreldrum upplýsingar um þroska barnsins og stöðu þess í skólanum.
  •  afla upplýsinga um aðstæður og uppeldisviðhorf foreldra.
  •  stuðla að þátttöku foreldra í starfi skólans.
  •  skapa umræðuvettvang fyrir skoðanaskipti um uppeldi barna (Heimild; aðalnámskrá leikskóla).
  •  rækta samvinnu og samskipti skóla og heimilanna.

Tímabundið leyfi

Foreldrar þurfa að fylla út umsókn í Íbúagátt Mosfellsbæjar ef nemendur þurfa leyfi í meira en einn skóladag. Nauðsynlegt er að upplýsa umsjónarkennara um leyfið með fyrirvara.


Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira