Frá skólastarfinu í Kvíslarskóla
06/02/23Um leið og við minnum á foreldraviðtölin miðvikudaginn 8. febrúar er rétt að segja frá skemmtilegu skólastarfi Kvíslarskóla í síðustu viku.
Til bakaSkólastarfið var brotið upp á fimmtudag og föstudag með Flipp floppi. Þá var stærðfræðin lögð til grundvallar náminu og ótalmörgu fléttað inn í kennsluna. Hver og einn árgangur var með mismunandi verkefni.
- Nemendur í 7. bekk smíðuðu byggingu úr kubbum og bjuggu til slönguspil.
- Nemendur í 8. bekk gerðu tölfræðikönnun í íþróttahúsinu og bjuggu til stærðfræðispil.
- Nemendur í 9. bekk undirbjuggu þriggja mánaða heimsreisu þar sem meðal annars var reiknaður kostnaður við ferðina.
- Nemendur í 10. bekk gerðu myndband um stærðfræði í daglegu lífi.
Hér eru eingöngu nefnd örfá dæmi af fjölbreyttum og skemmtilegum verkefnum sem allir höfðu gagn og gaman af.